Unnur

Hææ

17.10.2008 03:07:13 / sveinsy

Kreppa kreppa kreppa

 

Jæja ég sór vid sjálfa mig ad ég myndi ekki blogga um kreppuna, en madur er komin med alveg upp fyrir haus af tessu krepputali... Ísland í dag á Stöd 2 ákvad fyrr í kvöld ad tala ekki um kreppuna ... jibbí jibbí...
    en og vid skátarnir myndum orda tetta tetta er nú ekki rétti skátaandinn sem er í gangi núna... :lol:

en já .. hef ekki bloggad í ár og aldir ... bara hef ekki nennt tví, erum semsagt fyrir thá sem ekki vita flutt í Hafnafjörd í glæsileikann tar! ég gat t.d ekki sofnad í nótt vegna tess (og tetta er alveg satt) ad tad verid ad grafa eda byggja eda verid ad gera eitthvad MJÖG spennandi hérna í hverfinu... klukkan 2 ad nóttu til!!
nú og svo eru tetta alveg svona Ekta stúdentagardar, tar sem party-in um helgar eru í nánast hverri einustu íbúd takk fyrir gódan daginn! og byrja á föstudegi kl: 18:00 og enda á sunnudagsmorgni 2 sólarhringum sídar :)

Annars er bara ekki mikid ad frétta, Steini er bara alltaf ad vinna og í skólanum, nú hún módir mín er ad fara ad útskrifast 25.október úr Háskóla Íslands - madur fær nú ekki ad útskrifast tadan á hverjum degi... (verdur ekki heljarinnar party Tóta mín ;) ) gledi gledi gledi í Gledihjalla 65... !
Helga Sigurveig STEFNIR ad tví ad útskrifast um jólin med trompi sem er nú ekki amalegt, Sigurbjörg kemur heim um jólin med drenginn sinn sæta hann Sigfús Vidar ... ;)

annars er lífid bara fínt hér á læk ...
Helga... vid turfum ad fara ad massa fjallgönguhópinn okkar adeins betur... 1 ferd er nottla ekki ad gera sig ;)

Já svo á hann Árni bródir minn afmæli í dag (17.okt) til hamingju med tad :haha:  thú yngist med hverju árinu :haha:

ætla ad enda tetta á smá ensku"verkefni" fyrir ykkur :lol:
Tetta er bréf sem vinur minn Sir Robert Baden Powell skrifadi til skáta á sínum tíma, finnst hann eiga vel vid í Kreppunni gódu! Njótid :haha:

..I have had a most happy life and I want each one of you to have a happy life too. I believe that God put us in this jolly world to be happy and enjoy life. Happiness does not come from being rich, nor merely being successful in your career, nor by self-indulgence. One step towards happiness is to make yourself healthy and strong while you are a boy, so that you can be useful and so you can enjoy life when you are a man. Nature study will show you how full of beautiful and wonderful things God has made the world for you to enjoy. Be contented with what you have got and make the best of it. Look on the bright side of things instead of the gloomy one. But the real way to get happiness is by giving out happiness to other people. Try and leave this world a little better than you found it and when your turn comes to die, you can die happy in feeling that at any rate you have not wasted your time but have done your best. 'Be Prepared' in this way, to live happy and to die happy - stick to your Scout Promise always - even after you have ceased to be a boy - and God help you to do it.

kv.Unnur


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 21:22:18 / sveinsy

Im alive..........


Smá bloggleti í gangi!!!
 
blogga betur síðar!
adios ;)
 er samt á lífi :P


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 20:04:40 / sveinsy

HÆ SYKURPÚÐARNIR MÍNIR


Jæja.. ég er alveg hræðilega löt að blogga.. en.....
margt búið að vera að gerast hérna undanfarið... 

  Segi það bara svona í stikkorðum ;)

*Isabelle og Bjarni eignuðust lítil dreng 2.ágúst og búið að nefna hann Tristan Mána.. hef ekki séð hann ennþá því hann fæddist á Akureyri...hann var 19 merkur sá gutti ;)
*Sissa og Maggi eignuðust líka lítinn dreng 7.ágúst og er ekki búið að nefna hann, og ég hef ekkert séð hann heldur, því hann er nottla í DK... þeirra gutti var 14 merkur ..aaaðeins minni hehe;)
 voða sætir og fínir strákar ... segi bara til hamingju :)
*Nú ég og Steini kíktum til Akureyrar fyrir 2 vikum síðan í stutta helgarferð, fórum í hoppi og ætluðum við aldrei að fá flug... en það hafðist með seinustu vélinni sem fór þetta kvöldið!
*Erum svo að fara aftur eftir rúma viku og ætlum að vera þar í nokkra daga áður en að skólinn byrjar...
*Nú svo er ég byrjuð á akademíska námskeiðinu eins og það heitir, og er það bara fínt, aðeins yfirbókað námskeið, maður verður að mæta hálftíma fyrr til að fá sæti og borð!!
*Núú... svo vantar okkur Steina BÍL ef einhver er að selja sinn very cheap þá má sá sami hringja í mig eða Steina! ;)
*Nú svo er skólinn að fara að byrja hjá mér 1.sept. (og þá vil ég nottla fá pakka)... ekki af því að það sé fyrsti skóladagurinn, heldur á ég afmæli ... ;) jújú..22.ára...:D

    Annars hefur ekkert verið að gerast ... bara fer að hætta í Lyfju, eða svona fast... 
    
    en jæja... bið að heilsa í bili...
kv.Unna tunna


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 20:05:16 / sveinsy

Komin heim

Hola

Þá erum við mætt aftur á klakann eftir 3 vikna dvöl á Mallorca...
Buið að vera helvíti fínt í sólbaði í 35 stiga hita ;)
Steini er alveg svartur og ég svona pínu brún;)

Kíktum til Valldemossa á Chopin safnið og skoðuðum okkum um, fórum í Festival Park svona outlet búðir, Aqualand, fórum til Palma og margt fleira..
annars var bara verið að slappa af og sóla sig..

Svo komst í inn í háskólann í lögfræðina og byrja þar í september, er að fara á akademískt námskeið í vinnubrögðum í ágúst í 2 vikur... þannig að þetta verður svaka stuð hjá  mér í vetur :D


 planið er svo að reyna að fara norður eitthvað í sumar og vera í nokkra daga, heimsækja foreldra hans Steina og vini...
langar alveg rosalega að fara í sundlaugina í Þelamörk og Hrafnagili bestu sundlaugar landsins ;)
Svo er ekki enn komið plan fyrir versló, veit ekki hvort ég verði að vinna eða ekki... kemur allt í ljós síðar !


Núú svo er bara tæpur mánuður í krílið hennar Sigurbjargar.. verst að maður getur ekki séð lilla fyrr en í vetur... þú verður bara dugleg að setja inn myndir elskan af krílinu ;)

en annars erum við að fara núna út í Skemmu með Siggu og Geira...
læt þetta gott heita í bili...
kv.Unna


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 18:41:20 / sveinsy

Mallorca


Netið er ennþá ekki að virka í Fjallalind þannig að ég get ekki bloggað þar og ég veit ekkert hvenær það verður komið!
En allavega...
á eftir að segja þegar ég fór til Köben, ;)
fór semsagt 15.maí.. jámm alveg að verða kominn mánuður síðan... flaug semsagt til Kastrup, skrítið að vera bara alone í flugi ... reyndar var Júlli að fara í 9.bekkjar ferðina en hann fór í annarri vél. Ég þurfti hinsvegar að bíða eftir Sissu, því lestin var ekki komin þegar ég lenti, svo var ferðinni haldið í bæinn, og farið á Strikið, skoðuðum þar og fengum okkur að spise..
vorum í bænum til að verða 6, og þurftum þá að taka lestina til Horsens, sem tók um 3 og hálfan tíma...
    Fórum svo í Bilka ég loksins búin að sjá hvernig það er !!
fórum svo á göngugötuna, fórum í ísbúð.. svaka góður ís, man ekki hvað hún heitir búðin núna;)
horfðum á DVD  , fórum á skólabarinn og í bæinn um kvöldið,
var reyndar mjög stressuð að hun sendi mig eina í lestina aftur til baka en það hafðist allt saman hehe ;)
endaði bara á Kastrup og lestin fór ekki lengra :D
...alveg eins og Sigurbjörg var búin að segja svona 2000 sinnum(Ö)
Mjög gaman að hitta hana líka með bumbuna út í loftið ;)
sé hana samt ekkert fyrr en í vetur býst ég við???
En allavega takk kærlega fyrir mig, maturinn var mjög góður sem þú eldaðir og kökurnar líka hehe... (ég gerði nú smá í kökunum)


En annars eru bara 7 dagar í Mallorca og ég verð nú bara að segja að spenningurinn er orðinn nokkuð nettur! ;)
verðum 3 vikur í sólinni með hele familyen...

Er svo bara að bíða eftir svari frá skólanum sem á nú að fara að koma innan skamms... verður spennó að sjá hvort maður fái svar ;)

Helga er í Sverige og lætur ekkert í sér heyra... og hún kvaddi mig ekki einu sinni og ég er ekki sátt við þig Helga Sigurveig Sævarsdóttir!!! ef þú beilar 17.júní færðu ekki kort frá Mallorca:lol:
og hana nú!!



vill einhver gefa mér bíl??
mig vantar bíl hehe...
let me know..

Unnur og Telma (situr hérna hjá mér að lita) kveðja að sinni ;)
adios mis amigos!!!
hasta luego




» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 17:20:17 / sveinsy

jébb


Sko... hæ... get ekki bloggað heima hjá mer þar sem að það er ekki búið að græja netið !
þannig að þið verðið bara að vera þolinmóð! :)

á eftir að segja frá DK ferðinni og svonna .. sem var nú meget sjovt!
hún kemur von bráðar...
ætla að blogga í H65 við gott tækifæri, er búin að skrá mig á myspace þið þarna nöldurpúkar sem eruð búin að kvarta og kveina að ég sé ekki með myspace...og svo er ég nottla ennþá með facebook..

annars er lítið að frétta... þarf að fara að ganga frá HÍ náminu í haust og borga skólagjöldin... ! sá sem býðst til að borga er vinsamlegast beðinn um að hafa samband;)

en ég blogga betur fljótlega...promise;)

kv.sveinsd.


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 19:41:05 / sveinsy

Jæja...



Komið þið sæl...

Nú eru einungis um 16 dagar í Danmerkur ferðina til Horsens að hitta Sigurbjörgu, bumbuna og Magga Mega...;)  og spenningurinn auðvitað gríðarlegur!
Er komin með heilan gám sem þarf að skilast til Mrs.preggy...

Annars er bara komið sumar hér á klakanum, ekki slæmt þegar það er buið að vera svona leiðindarveður hérna á klakanum í allan vetur...
Frekar fúlt að vera að vinna inni þegar að það er svona geðveikt veður! en maður bætir það bara upp með 3ja vikna Mallorca ferð;)
hópurinn þetta árið er orðinn frekaaar stór ... kannski maður láti listann bara flakka með:
Tóta - aðalfararstjórinn
Larsson rokkari
Sr.Hjörtur Hjartar
Frú.Unnur Axelsd.
Stefanía sunddrottning
Norðanvindurinn Aðalsteinn Magnús
Unnur Sveins
Hjörtur Sveins    
Árni Sveins   
Júlli Sveins fótboltakappi með meiru
Helena Rut
Sigrún Eva
Snillingurinn Ásgeir
Telma Þórunn
Alfa og co.
...þetta eru svona þeir helstu sem verða á Pillari
og enn á eftir að bætast í hópinn!!!

Steini er svo að fara norður á morgun, og ég verð eftir í bænum...
kemur aftur á mánudaginn...

Nú svo var afmælið hjá Tótu alveg geggjað hérna 17.apríl.... fullt af fólki og veitingum!
og svo var partyið daginn eftir ekki af verri kantinum.. pabbi að rokka og spila með bandinu ... ekki verra það...

Nú svo erum við skötuhjú komin með hjólaæði og búinn að vera að hjóla allan bæinn... og er ég nú 1 sinni búin að hjóla í og úr vinnu... ;)
svaka gaman...

en já... held ég hafi þetta ekki lengra í bili... heyrumst síðar!


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 19:06:57 / sveinsy

DANMÖRK







aðalgellurnar að fara að hittast 15.maí
djöfull verður það GAMAN
erum semsagt að fara í H&M og Bilka
og kannski nokkrar barnabúðir ;)
þar sem Sissa mín er preggy :D







BARA 39 DAGAR Í ÞETTA ;)

Jæja ... best að fara í bili


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 21:41:39 / sveinsy

Jæja komin tími á blogg!!!


Jæja... er ekki best að drita einu bloggi hérna niður... haa...
margt búið að vera að gerast hjá okkur mér undanfarið...
sem dæmi má nefna að bíllinn minn er ónýtur... lenti í smá árekstri hérna um daginn sem endaði með því að ég dúndraði á bíl fyrir framan mig, ekki skrítið þar sem bremsurnar voru nánast ónýtar á bílnum, fór svo með hann í Sorpu og lét henda honum í vikunni.... fékk 15.000 kjell fyrir hann ;)

Nú svo er planið að fara til Mallorca í sumar eða 18.júní og vera í 3 vikur með öllu genginu.. það verður nú heldur betur skrautlegt!!!
held að hópurinn sé kominn uppí 20 manns...
nú svo er mútta að verða fimmtug núna 17.apríl og verður alveg heljarinnar veisla og verður þetta haldið heima hjá Sveini og Sirry ...

Nú svo er nottla AÐAL fréttin... að ég er að fara til DK 15.maí að hitta miss preggy.. sem er liggur við komin á steypirinn.. :)
ætla að vera þarna í 3 daga... kem aftur 19.maí...
planið er að sissa nái í mig á Kastrup og við förum svo bara saman til Horsens:D
já og svo er ég að fara í Bilka ... !! já og H&M... þetta verður MJÖG gaman...
...Nú svo er júlli bró að fara í 9.bekkjar ferðina sama dag.. en ekki í sömu vél, þannig ef hann verður með eitthvað vesen þá mætir systir hans og nær í hann múhahaha... :D
bara 42 dagar í þetta :)


Svo er ég búin að skrá mig í nám í haust í lögfræði í HÍ ... það verður mjög fínt að prófa það :)


en annars hef ég ekkert meira að segja í bili...
ég vil komment svo það verði bloggað aftur hérna í þessum mánuði ;)

kv.Unnur


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 12:03:59 / sveinsy

Mjög stutt..


Hæ hæ

Búin að vera í smá bloggleti!!

ætla samt að blogga betur næst ...er að fara að vinna núna...
var samt að setja nýjan tengil hérna inn...
bumbubúa Sigurbjargar;)

þangað til MJÖG fljótlega
bless kex:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 00:12:45 / sveinsy

2008


Svona í tilefni af nýju ári , þá ætla ég að segja gleðilegt nýtt ár :)
Ein frekar sein, en betra seint en aldrei ekki satt ;)

Allavega nú er sko hellingur búin að vera að gerast hjá mér seinustu daga...
eins og ég sagði í seinustu færslu kláraði ég MK og ætla að láta fylgja mynd sem ég stal eða fékk lánaða hjá Sveini Hirti frænda...


ég og Sigrún frænka 20.des '07

 

 

 

 

 

Ég er byrjuð að vinna á fullu í Lyfju í Smáralind og líkar bara vel... :P

Svo flutti Steini minn til mín núna föstudaginn 11.janúar... dagurinn í dag var nú pínu merkilegur því við vorum í fyrsta skiptið saman í meira en viku síðan við byrjuðum saman!
ansi gott;)

Pabbi var svo góður að hjálpa mér að mála og gera herbergið mitt flott og fínt og að við gætum verið bæði í herberginu!
Steini er farinn að vinna á fullu í Papco! já það er einmitt klósettrúlluverksmiðjan... ;)

Annars er lítið að frétta af mér, nema fór til læknis fyrir viku síðan, af þvi ég er búin að vera með svo roooosalega mikla höfuðverki síðan bara í október, mikið þreytt alltaf og alltaf eitthvað úthaldslaus...
fór svo í blóðprufu á þriðjudaginn þar sem ég ældi NÆSTUM því, og leið næstum því yfir jibbí... gaman gaman... kom það svo í ljós daginn eftir að ég er með vanvirkan sjaldkirtill !!! og já það vantar mikið af B12 vítamíni í líkamann á mér... það sér víst um eitthvað frásog frá þörmunum eða eitthvað man ekki hvað það er...
er semsagt á leiðinni til sérfræðings í efnaskipta og blablablalæknis 31 janúar... og fæ ég þar örugglega góðan kokteil sem ég þarf að éta þangað til ég fer í gröfina!!! ;)

 

 

annars bara... hef ég ekki meira að segja í bili!!!

takk og bæ


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 19:04:13 / sveinsy

Gleðileg jól

 
 
Hellú alle sammen...
 
langt síðan ég bloggaði seinast enda búið að vera mikið að gerast hjá manni undanfarið...En það helsta sem hefur verið að gerast

  • Kláraði prófin 11.desember
  • Fór að vinna strax eftir próf
  • pabbi útskrifaðist 19.des úr meistaraskólanum
  • ég útskrifaðist úr MK 20.desember
  • fékk maaaarga pakka í útskriftargjöf, get byrjað að búa hehe... fekk margt í búið... en er samt ekkert að fara að flytja strax
  • Jólin komu og ég fékk marga pakka... fékk meðal annars Greys anatomy pakkann frá steina og hef ég legið yfir því öll jólin...
  • fór norður 26 des og er enn þar...
  • Búin að liggja gjörsamlega yfir Greys og er Steini orðinn dyggur aðdáandi ;)
Byrja svo að vinna 6 janúar í Lyfju á fullu, og steini kemur suður um 10 jan ;)
annars ætla eg ekkert að hafa þetta lengra í bili...
Annars segi ég bara Gleðileg jól og hafið það  gott um áramótin!
 takk fyrir alla pakkanna allir saman :D



ADIOS


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 03:05:41 / sveinsy

1 próf eftir............................................

 

 

 

Hellúú...

ég á að vera að læra.... og ég á líka að vera sofandi... en ákvað að blogga frekar... !

Er semsagt frekar stressuð fyrir þetta blessaða próf á morgun! búin að vera að drekka kamillute í allt kvöld, og smétta á tyggjói eins og brjálæðingur!!
Vigga kom í kvöld til mín að hjálpa mér aðeins í stærðfræðinni...

Fór í próf í morgun í eðlis- og efnafræði... alveg gasalega mikið stuð!
Fæ út úr því á morgun - fyrir hádegi!
Fæ svo út úr hinu prófinu líklega daginn eftir... eða á miðvikudaginn... úff ég get ekki beðið!!:$
Svo finnst mér að kennararnir hafa verið frekaaaar lengi að setja inn einkunnirnar, og er búin að fá útúr öllu núna nema landafræði, 2 eininga íþróttaáfanganum, og svo nottla nát&stæ!!!

Fer svo að vinna á miðvikudaginn veit ekki klukkan hvað 10 eða 11 og veit ekkert hvað ég verð lengi að vinna :S
Langar nottla mest að fara norður og gera ekki neitt í nokkra daga ;) - en það er víst ekki í boði takk fyrir góðann dag !!

er að pæla núna a fara að leggja mig til svona 6 í fyrramálið og fara þá að læra í klukkutíma eða svo..!
er frekar þreytt nuna.. 8|

Jæja........ ég er farin
bless kex
Unnur stærðfræðingur  múhaha

..... ein að fara yyyyfir um :|

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 01:55:42 / sveinsy

bleeee

 

Nú eru prófin farin að nálgast!!!

holímólí!

Mig langar svo að fara norður!!!!!!!!!!!!!!

Langar að fara til Steina, hitta sissu og sjá nýju

íbúðina þeirra!! nenni ekki að þurfa að fara í próf!!!!!!!

 Sissa kom hérna heim á mánudagsmorguninn og

BANKAÐI á gluggann hjá mér... takk elskan...;)

og tuðaði í svona 25 mín að ég ætti að fara með þeim

norður... vildi að ég hefði getað það!!! en svona er

þetta nú bara... :(

annars er ekkert að frétta hér á bæ...

get gjörsamlega ekki beðið að vera búin í prófunum...

sem verður á þriðjudaginn í næstu viku, þvílíkur léttir

sem það verður !

vonumst þá bara til að einkunnirnar verði réttum megin

við strikið:!:

... svo duttu allar gömlu færslurnar mínar út af

?? af hverju gerist það eiginlega.. og svo get ég

ekkert lagað það á síðustjórninni.. bögg!

annars nenni eg ekki að blogga...

ætla bara að hætta því í bili

takk og bless



» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 16:35:28 / sveinsy

Hellú

Sælar girls!

Er komið endanlegt plan fyrir 14.des???
:lol:

Var búin að heyra að fara á Ítalíu að spise, fara í sund og svo heim til Brynju... líka buin að heyra að við myndum elda together...
kemur allt í ljós.. :D

p.s gimpið okkar er nottla mætt á svæðið hálfum mánuði á undan áætlun... getum kannski hist eitthvað smá áður en hún fer norður...???
Ohh..mig langar norður!!

allavega heyrumst

kv.Party planer :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 október
Dagsetning
10. febrúar 2010
Gamlar síður