Unnur

Hææ

09.08.2008 20:04:40 / sveinsy

HÆ SYKURPÚÐARNIR MÍNIR


Jæja.. ég er alveg hræðilega löt að blogga.. en.....
margt búið að vera að gerast hérna undanfarið... 

  Segi það bara svona í stikkorðum ;)

*Isabelle og Bjarni eignuðust lítil dreng 2.ágúst og búið að nefna hann Tristan Mána.. hef ekki séð hann ennþá því hann fæddist á Akureyri...hann var 19 merkur sá gutti ;)
*Sissa og Maggi eignuðust líka lítinn dreng 7.ágúst og er ekki búið að nefna hann, og ég hef ekkert séð hann heldur, því hann er nottla í DK... þeirra gutti var 14 merkur ..aaaðeins minni hehe;)
 voða sætir og fínir strákar ... segi bara til hamingju :)
*Nú ég og Steini kíktum til Akureyrar fyrir 2 vikum síðan í stutta helgarferð, fórum í hoppi og ætluðum við aldrei að fá flug... en það hafðist með seinustu vélinni sem fór þetta kvöldið!
*Erum svo að fara aftur eftir rúma viku og ætlum að vera þar í nokkra daga áður en að skólinn byrjar...
*Nú svo er ég byrjuð á akademíska námskeiðinu eins og það heitir, og er það bara fínt, aðeins yfirbókað námskeið, maður verður að mæta hálftíma fyrr til að fá sæti og borð!!
*Núú... svo vantar okkur Steina BÍL ef einhver er að selja sinn very cheap þá má sá sami hringja í mig eða Steina! ;)
*Nú svo er skólinn að fara að byrja hjá mér 1.sept. (og þá vil ég nottla fá pakka)... ekki af því að það sé fyrsti skóladagurinn, heldur á ég afmæli ... ;) jújú..22.ára...:D

    Annars hefur ekkert verið að gerast ... bara fer að hætta í Lyfju, eða svona fast... 
    
    en jæja... bið að heilsa í bili...
kv.Unna tunna

Linda Björk skrifaði
Vííí Unnur bloggaði!! En hvað segiru Unnur mín, er fyrirlesarinn á akademíska námskeiðinu svoldið í því að segja NÚ?? Eða fannstu þetta alveg upp hjá sjálfri þér?

Love
Bjöggi skrifaði
Heyrðu þið getuð fengið minn bíl fyrir 3millj.;)
Sigga skrifaði
Bjöggi, þú verður að bjóða þeim betur en það :) Sláðu svona 90% af verðinu þá kanski verður þetta viðráðanlegt fyrir fátæka námsmenn ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 október
Dagsetning
14. mars 2010
Gamlar síður